Monday, 27 October 2008

Furðulegur mánuður

Jæja nú fer þess einkennilegi mánuður að verða búinn. Man ekki eftir öðrum eins.
Í stuttu máli:
27. ágúst. Kem til London til að taka master í Tölvunarfræðum - Viðskiptagreind
27. ágúst - 1 okt. Vinn fyrir Kaupþing Íslandi gegnum Internettengingu til Íslands.
1- 8 okt. Mæti í vinnu hjá Kaupþingi Singer og Friedlander, one Hannover street London.
Sem um að vinna eins mikið og ég get þar til skólinn er kominn á fullt. Betra að taka mikið fyrst - komast inn hlutina, en framtíðarplanið er að vinna 3 daga í viku til hádegis.
1. - 8 okt skila ég fullri vinnu.
3. okt. Skólinn byrjar. Fer rólega af stað - nógur tími til að vinna hjá S og F.
8. okt.
  • Kl. 8:00 - Mæti í vinnu hjá S og F
  • Kl. 11:00 er ég send heim, Brown - Darling mættur.
  • Kl. 13:00 Aftur komin í vinnu hjá Kaupþingi Íslandi.
  • Kl. 16:00 Eggert hringir frá Íslandi. Hafði hrunið í gólfið í IKEA. Kominn á Borgarspítalann.
  • Kl. 17:00 Fréttir að heiman - Allt í fínu með Eggert - hann fer heim um kvöldið.
8- 25. okt. Vinn heim til Íslands gegnum netið. Skólinn að komast af stað.
25. okt. Sagt upp hjá Kaupþingi Íslandi. Get einbeitt mér að skólanum.

Spurning hvað gerist næst......

Monday, 20 October 2008

Graskerið

Í gær bjukum við til grasker andlit, Atli gerði munnin en ég gerði augun og nefið,sog skar ég út munnin en Atli gerði hitt.
bíðið aðeins ég þarf á klóstið!.... svo gerðu mamma og frances graskersköku úr kjötinu. En ég sobnaði ófart þanig að ég fék enga köku. "bæ!...

Friday, 17 October 2008

Hryðjuverkamenn á lista hinna viljugu þjóða.

Það er soldið skrítið að vera af þjóð sem er á lista hinna viljugu þjóða http://www.whitehouse.gov/news/releases/2003/03/20030327-10.html og þurfa svo að taka sömu meðulin og við skrifuðum uppá.
Veiga

ævintýri

Eftir skóla fórum við niður að á og gengum meðfram bökkum hennar. Við tókum eftir því að við útidyrnar á öllum húsunum voru 40 cm háir þröskuldar eða slár. Við áttuðum okkur fljótlega á því að þær voru til þess að það flæddi ekki inn í öll fínu húsin þegar flóðið kom upp ánna. Það flæddi svo hratt að, að við lentum í smá hremmingum og þurftum að vaða til baka til að finna stíg sem lág frá ánni. Svo á bakaleiðinni skeit fugl á bakið á mér! ojbara - volgur brúnn risakúkur.
Magga aupair

fotbolta tilkinigin

í dag var mær tilkint að ég má fara til skólan sem Davit becan rekur,ég var voða hisa að ðví að ðað eru bara 15 krakar sem fá að fara.
Þórunn

dagurinn í dag

í dag ás ég mús sem bítur og ber með sér sjúkdóm sem betur fer beit hún mig ekki .á kew bridge
kom stórt flóð sem kemur bara einu sinni á mánuði og það var í dag.
við hitum nokkra veiðimenn en það var eiginlega eingin fiskur í áni.
Atli

Dagbók

Halló.
Hér er komin bloggsíðan okkar þennan vetur í London. Þetta á að verða okkar dagbók og við ætlum að reyna að skrifa reglulega um dagana og það sem á þá hefur drifið.

Atli, Þórunn og Veiga